Rachelin sú sætasta

Þú ert það sem þú hugsar!!!!

08.06.2009 15:43:55 / rachelin

Tíminn líður hratt

á gervihnattaöld......
Já það má nú með sanni segja. Þetta ár mitt í skólanum er gjörsamlega búið að þjóta stjórnlaust framhjá mér. 5 lokapróf eftir og svo útskrift 20. júní..... Vííí það verður samt ansi skrítið. Aðallega samt að hitta ekki stelpurnar í bekknum held ég. Mér er búið að ganga vel so far í prófunum, held ég allavega hehe búin með 7 stykki.
Fönnzan að fara að útskrifast í fyrramálið úr 2. bekk, það er nú alveg pínu krúttlað en samt pínu scary líka. Barnið er orðið GELGJA..... Greiddi henni í morgun og hún fór nottla strax í sepgilinn eftir það sörpræs, sörpræs. Horfði lengi á sjálfan sig grafalvarleg. Svo kom "rosalega er ég sæt" bwahahaha svo hógvær þessi elska. Ég meina mar á að segja það sem manni finnst ekki satt ?
En núna er ég að einbeita mér að prófunum, lítið annað hægt að gera sumarið gjörsamlega óplanað nema það að ég fer á Þjóðhátíð íha!! ;) langar GEÐVEIKT til útlanda but that aint gona happen :(
Alltaf stuð í einkalífinu hjá mér þó ég sé í prófum hehe. Búin að vera í mikilli sjálfsskoðun undanfarið og sett fólk til hliðar sem hefur ekki komið hreint fram. Nenni ekki að púkka uppá þannig lið, en það er jú víst einfaldlega þannig að við kynnumst allskonar fólki í gegnum tíðina bæði góðu og slæmu!! Þessvegna bara um að gera að halda fast í þetta góða og sleppa þessu slæma bara ;)

Ciao fallega fólk


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.05.2009 11:02:45 / rachelin

Úffffffff....

Ég er að verða geðveik á lærdómi og þá sérstakelga ritgerðarskilum, á að skila lokaverkefninu mínu á morgun og ég er svo innilega ekki búin að ná að klára það. Thank god hvað ég á mikið að yndislegum vinkonum sem eru að reyna að hjálpa mér !! Tíminn bara gjörsamlega flýgur frá manni. Ennn útskrift eftir 27 daga (vonandi) og þa´verður sko kátt í höllinni, höllinni, höllinni.

Skipasundið er orðið að Kattholti nr. 2. Jasmín ofurprinsessa átti kettlinga fyrir tæpum 12 vikum síðan og svo Tinna dóttir hennar fyrir rúmri viku síðan, hehe það iðar bókstaflega allt af fjöri hér. Ég er enn með einn kettling eftir úr fyrra goti. Hrikalega sætt en ég verð víst að sætta mig að eiga ekki ennþá stóra ljónahúsið á Arnarnesinu til að rúma þetta allt... :s

Kristín Fönn er að verða búin með 2. bekk talandi um hvað tíminn líður hratt, er farin að ná mér uppundir höku uhhh má það eða ??? Nei akkúrat hélt ekki!!!

Eurovision sææææællll eigum við e-ð að ræða það sjitt hvað þetta var gaman frábær árangur hjá Jóhönnu sem ég persónulega bjóst alls ekki við þar sem mér finnst lagið alveg hrikalega leiðinlegt. Geggjaður árangur hjá stelpunni ;) Ennn norski prinsinn umm ég var búin að halda með honum í 2 vikur fyrir keppni. Ekkert smá frábært hjá honum svo skemmir útlitið nú ekk mikið fyrir. Við Jóhannes vinur minn ætlum til Noregs að ári í næstu keppni takk fyrir.
Idolið slefff Kris djö. er hann flottur mar.... Var ekkert smá ánægð að hann skyldi taka þetta en ekki öskurapinn sem teipar á sér punginn fyrir aftan til að geta klæðst þessum þrengstu buxum sem ég hef nokkurm tíma séð. Væri sko til í að vera fluga á vegg til að sjá hvernig í ósköpunum hann kemst í þetta.
Ennn nóg af bulli verð að halda áfram að skrifa ritgerð....

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.04.2009 00:02:54 / rachelin

Af hverju í andskotanum

er svona leiðinlegt að gera ritgerð ???? Getur einhver sagt mér það ? Nei akkúrat enginn!!! Týpískt ég að velja ritgerðarlokaverkefnið um e-ð efni sem er ekki hægt að skrifa 4-500 orð um en ég er s.s. að skrifa um veisrusýkingar í sambandi við snyrtifræði semn ég á að skila á mánudagsmorguninn og ég er komin með tæplega 1.500 orð. HJÁLP allir vinir mínir að handan og vinir þeirra. 
Úff svo er ég allt í einu bara að útskrifast eftir 2 mánuði vá hvað tíminn er búinn að fljúga áfram, finnst ég bara nýbyrjuð. Svo kemur sumarið og hvað tekur við ?? Góð samning. Fyrir þá sem ekki vita að þá ríkir smá kreppa á landinu okkar fræga og dulítið erfiðara að fá samnig en ella. Ég er fyrst núna að byrja að fá pínku kvíðahnút í mallakútinn hvernig þetta fer allt saman. Ennnnn ef maður tekur bara gömlu góðu Rach á þetta þá segir mar bara " iss þetta reddast allt á endanum" og auðvitað gerir það, það. En ekki hvað :) En nóg um mig hvað er að frétta af ykkur ? Endilega kvittið þið þó svo að ég sé nánast hætt að blogga fésið er bara einum of skemmtilegt híhíhí. 

Gleðilegt sumar fallega fólk, knúz á línuna.  

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.04.2009 12:32:55 / rachelin

Uhhh já !!!

Vá hvað það er langt síðan mar hefur skrifað e-ð hér inn. Facebookið, veikindi, skólinn, ræktin, vinnan og allt þetta búið að taka yfirhöndina alveg gjörsamlega!!!
Það er ekki hægt að segja að heilsan sé búin að vera uppá marga fiskana hérna í Skipasundinu undanfarið. Fönnzan byrjaði á að vera alveg fárveik í marga daga, ég gat ekkert mætt í skólann enda gerði ég ekkert annað en að þrífa upp ælur og svona skemmtilegheit. Litlan fékk svona slæma streptókokkasýkingu í magann, ristilbólgur og háan hita. Svo við ræðum ekkert ælurnar sem fylgdu þessu. Svo þegar hún fór að hressast tók ég við. Er enn lasin :( En er að fara til doksa í kvöld!! ;) Vonandi er þetta svo doktor MacDreamy hehe ok ok harla ólíklegt en ég meina common mar má láta sig dreyma ekki satt ?
Nú svona af því að ég er svo sjúklega ung. gr.. og rík þá ákvað ég að kaupa mér annað líkamsræktarkort og vera líka í Sporthúsinu þar sem ástkonan mín hún Gunnhildur er farin að kenna spinning þar eins og óð manneskja og ég nottla elti eins og lítill þægur, slefandi hundur. Nú hlýt  ég að verða mjó og stinn, það hlýtur bara að vera!!! :haha:
Jasmín litla sæta kisulóran mín eignaðist aftur kettlinga 2. mars og varð ég því amma 3ja yndislegra kettlinga á ný ;) Þeir heita, Boggi, Bjalla og Britney, allir ferlega loðnir, spikfeitir og krúttaralegir....
Komin geðveikt afturúr í skólanum út af öllum þessum helvítis veikindum, ætla nú að reyna að mæta á morgun og láta ljós mitt skína hehe ok reyna það allavega. Sem betur fer er mar nú ljóngáfaður hey leifiði mér allavega að halda það... Er farin að vinna á stofum í starfsþjálfun á föstudögum og er hjá henni Agnesi minni á GK í Mosó. það er alveg rosafínt!! Mjög góð þjálfun.
En lofa að koma með eldhresst blogg very very soon, er frekar andlaus núna.... Chao...

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.02.2009 20:16:29 / rachelin

Próf, stress og geðveiki.

Það er akkúrat EKKERTað gerast nema það. Allt að  verða crazy í þessum skóla!!!
Sagði reyndar bless við ljóskuna í dag allavega  í bili.  Er komin með ljósbróntkaramellubeigegyllt hár.  Hahahahaha flólkið ?  Nauhaudds.  Fór reyndarútsíðasta   lau.kv. á  kokteilafyllerí með Gunnsunni minni.Geggjað gaman og    er að fara aftur út  á lau.kv.  jebbs jebbs í miðjum prófum.Skam,skamm.  Ein síðan síðustu helgi af mér og  hinni íðilfögru Gunnhildi spinninghitler:  haha:   
Farin að  læra  chao.


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2009 00:28:34 / rachelin

Lazarus aumingji með hor & slef

og er svoooo ekki að fílaða :cry: Jebbs ég er komin með ógeðisflensu dauðans enn eina ferðina. Andskotinn hvað er það eiginlega ég virðist grípa allar flensur :( Ætli það vanti allt vítamín í mig eða hver djöfullinn er eiginlega í gangi ? Jahh mar spyr sig! Hef svooo engan tíma í þetta núna. Korter í lokapróf þannig að það er MJÖG slæmt að missa úr skólanum, kemst ekki í ræktina í miðju brjálæðistátaki og vinnuhelgi framundan. Glatað svo ekki sé meira sagt. Átakið gengur alveg þrusuvel b.t.w. ég er búin að missa 2,5 kg. jeiiiii. Þá eru bara humm já alveg fullt, fullt eftir ennnnn þetta kemur. Eða eins og snillingurinn hún Edna vinkona mín sagði að þá er ég ekkert of feit ég er bara aðeins of lágvaxin. Bwahahahaha. Vinkonurnar búnar að vera ferlega duglegar samt. Snæja kom í kaffi eftir vinnu hjá sér í dag og var hjá mér til 8 í kvöld. Svo kom Írisn með spólu, verkjatöflur og Strepsils. Æ þið eruð svo sætar krúslurnar mínar!!

Vá eigum við e-ð að ræða þessi mótmæli eða ? Nei nákvl. sumir eru bara gjörsamlega búnir að tapa vitinu sem guð gaf þeim ef hann hefur þá gefið þeim e-ð stórt. Mótmælin eiga alveg klárlega rétt á sér. En EKKI með þessu móti. Get ekki ímyndað mér að fólk sem er með einhverja vitglóru í hausnum finnist í lagi að ráðast svona harkalega á lögreguna. Nokkuð viss um að það sé kreppa hjá þeim og þeir eru jú bara að sinna vinnu sinni eins og aðrir. Erum við að verða eins og Litháar sem mega ekki sjá laganna verði öðruvísi en að ganga í skrokk á þeim. Getum við ekki bara drullast til að bera virðingu fyrir lögreglunni. Það væri nú ansi slæmt ef að þeirra nyti ekki við. Úff ég verð alveg reið þegar ég hugsa um þetta. Helvítis fokking fokk. Ég er allavega mjög ánægð með það að hafa hætt við að gerast lögga en ég ætlaði einmitt alltaf að gera það. Ég meina lögga og snyrtifræðingur. Er þetta ekki bara alveg nauðalíkt ? Hehehehe.

Sjitt hvenær ætli ég nái eiginlega að fara að lúlla?? Góð spurning var komin uppí rúm fyrir miðnætti í gær.kv. Vaknaði svo nottla með Fönnsunni minni í morgun áður en hún fór í skólann, ég var nottla bara heima. Ætlaði svo aðeins að leggja mig aftur, sem var jú aðeins gott betur en aðeins því ég vaknaði ekki fyrr en 14.02 aftur. Hvað er það ? Vaknaðoi ekki einu sinni til að horfa á Granna össs ekki gott mál það sko. Hef nú klárlega ekki sofið svona mikið síðan fyrir gos. Var reyndar kannski ekki alveg fædd þá en ég meina þið vitið...... En jæja ætla að fara að skríða uppí sófa og horfa á e-ð í sjónvarpinu þangað til ég fer að leika við Óla lokbrá. Þætti AFAR vænt um að fá kvitt frá ykkur. Þoli ekki lið sem les alltaf  án þess að kvitta !!! ;)

» 12 hafa sagt sína skoðun

19.01.2009 00:35:02 / rachelin

Jeiiii þetta er uppáhaldslagið mitt!!!

Heheheh þetta er setning sem klárlega ALLIR sem þekkja mig ættu að kannast vel við. Þar sem að flest lög sem ég held uppá eru uppáhldslögin mín tíhíhí. Veit bara ekkert betra en að keyra með tónlistina í BOTNI og hugsa. Jebbs ég er svo fáránlega vel gefin að ég get hugsað þó það sé allt á milljón. Það er kannski eitt af því fáa sem aðskilur mig frá því að vera karlmaður. Var það allavega pottþétt í fyrra lífi. En já anyways höldum áfram með uppáhaldslögin. En þá bara verð ég að segja að uppáhladslagið mitt í dag er Sex on Fire með Kings of leon. Eruði ekki að grínast með þetta lag. Sjitturinn, titturinn eins og sumir mundu sennilega segja!! My god. Get hlustað á þetta endalaust. Fyndið líka hvað lög minna mann á fólk. Þið vitið mar heyrir e-ð lag og bara jeiii þessi manneskja eða oj þetta fífl hehehe. Svo er nottla Whitney vinkona mín sem á flottasta lag í geymi. How will I know...... það er sjúkt. ÖLL lögin með Sálinni eru bara æði. Get ekki talið upp e-ð uppáhlds með þeim því þá kemur alltaf og já þetta og þetta og þetta...... úff gæti talið upp í alla nótt. En allavega Sex on fire. Pési vinur minn gerði ekki lítið grín af mér eftir eitt Sálraballið þar sem ég gargaði víst úr mér lungun af því að það var ALLTAF uppáhaldslagið mitt. Hey ætli ég hafi kannski ekki verið karlmaður í fyrra lífi heldur grúppía ?? Hehehe vona þá að ég hafi verið svipuð grúppía og Helga Braga sem byrjaði alltaf á söngvaranum sjitt muniði eftir þessu atriði. Fáránlega fyndið mar!!!
Úfff svo er eitt sem er MJÖG ofarlega í huga mínum þessa dagana. En það er sú skelfilega staðreynd að eftir nákvæmlega 203 daga verð ég 30 ára. Guð á himnunum og allir hans lærisveinar. Þetta er ekkert djók í brók. Mér finnst bara eins og líf mitt
sé að enda eða e-ð og ég sem á svo MARGT eftir. Ég er með svo vangefin þrítugstremma að það er ekki eðlilegt. Er búin að vera með hann síðan ég varð 25 en það varð einmitt gríðarlegt sjokk líka. Hehehhehe. Hvað er það af hverju sættir maður sig ekki bara við þetta ? Ég meina það eldast allir!! Í árum allavega ;). Við Íris fórum út að borða í kvöld á Carúsó með Fönnsuna og litlan nottla hefur gríðarlega miklar áhyggjur af því að múttan eignist annað barn spáir mjög mikið í það þessa dagana. En það s.s. datt allt í einu uppúr henni þegar við Íris vorum að ræða þessan skemmtilega aldur minn að ég væri hreinlega orðin OF gömul til að koma með annað barn. Sjitt, þetta var auðvitað brjálæðislega fyndið ég viðurkenni það alveg en sjitt úfff. Er ég að verða svona gömul ? Mér sem finnst ég enn vera svo ekki deginum eldri en 16 :haha: Hún er líka rosalega að spá í því ef að ef að ég eignist kærasta sem eigi strák hvað verða þau þá eiginlega þ.e.a.s. hún og sonurinn.. Nákvæmlega þvílíku pælingarnar. And I dont know why!!!  Enn já já ok ok þetta er s.s. bara orðið bull sem er klárlega í fyrsta skipti á minni "stuttu"ævi ;) Farin í koju að dreyma hrukkur, facelift, svuntuaðgerðir og botox !!! Adios.

» 6 hafa sagt sína skoðun

17.01.2009 01:58:16 / rachelin

Ég verð að viðurkenna

að ég er orðin snar...... ummhumm hangi á þessu fokkings facebook ÖLLUM stundum þegar ég er heima hjá mér og er ekki að læra. Facebook er s.s. búið að taka mig í razz.... ósmurt ! Bara að ég væri svona dugleg að þrífa heima hjá mér en nóbbs það er klárlega ekki að gerast. Er enn að bíða eftir að ég verði fullorðin og fái þessi þrifgen í mig. Ég vissi að ég hefði ekki átt að fá mér facebook. Líf mitt er orðið eins og liðið í skaupinu!!! Hvað er það ?
En já föstudagskvöld ég ætlaði að fara GEÐVEIKT snemma að sofa í kvöld, vikan búin að vera vægast sagt erfið  3 erfið próf í skólanum. Og já svo er ég í þessu brjálaða átaki mínu. Eins gott að það eigi eftir að skila árangri annrs verð ég crazy in the creamhouse. Fór s.s í ræktina í morgun 6.15 og fór svo aftur í 2 tíma eftir skóla. Heilbrigð ? Er sérstaklega að einbeyta mér að því að brenna æ þið vitið rauðu og appelsínugulu molunum í Macintosh. Ég er nebbla fíkill :( En jeiii hef ekki borðað neitt nammi í vikunni nema einn draum :( VARÐ. Enda var þetta rosa góður draumur!! þangað til hann var búinn þá fékk ég ógeðis samviskubit. Leið bara eins og fíkli sem gæti ekki sleppt sprautunni sinni. Ætli Tóti Tyrfings væri reiðubúinn að taka við súkkulaðifíkli eins og spruatufíkli?? Humm alveg vert að skoða það!! Svo er ég kannski bara orðin rugluð af þessum rafmagnstækjum sem við erum að læra á í skólanum. Rafmagn x Rakel = Total disaster. Án gríns fæ raflost í hvert skipti sem að ég horfi á e-ð rafmagnstæki þarna. Það útskýrir reyndar margt. Humm ég er bara greinilega orðin kex!!! Þannig að ég ætla að fara að dröhöllast til að sofa í hausinn á mér nei sko ég er m.a.s. búin að signa mig off á feisinu ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.01.2009 19:15:25 / rachelin

Skúbbídú

Vá hvað það er EKKERT að frétta af mér nema það að ég er á MILLJÓN í skúlen, ENDALAUS próf og þá meina ég endalaus. Nú svo er ég nottla komin í crazy in the creamhouse átak fer alveg 8-9 x í viku í ræktina á viku og treð í mig einhverjum próteinsjeikum. Jebbs ekkert kjaftæði lengur. Hef reyndar alls engan tíma til að fara svona mikið en mar verðru bara að forgangsraða. Fagra Fönnsan mín er orðin svo stór að ég hleyp oft út kl. 6 á morgnana og hún sefur bara vært á meðan tek bara símann með, kem svo heim og vek hana í skólann. Já hey b.t.w. Prinsessan varð 8 ára gömul fyrir akkúrat viku síðan. Jesús minn hvað tíminn líður hratt. Finnst svoooo ótrúlega stutt síðan ég hélt á henni nýfæddri með mestu bollukinnar sem ég hef séð á nýfæddu barni tíhíhí. Bauð henni út að borða í tilefni dagsins með því skilyrði að við færum ekki á Carúsó að öðru leytti mátti hún velja. Þar sem Carúsó er nánast okkar annað heimili ;) Prinsessan valdi bara næsta bæ við Ítalíu. Fórum þangað og svo beint í "fullorðinsbíó" eins og hún orðar það eða s.s. 8. bíó tíhíhí. Sáum Yes man sjitturinn titturinn eigum við e-ð að ræða þessa mynd ég bókstaflega grenjaði úr hlátri ALLAN tímann. SNILLD!!! En já vá hvað það er samt skrítið að eiga svona stórt og þroskað barn. Hvað gerðist eiginlega var ósjálfsbajraga og svo allt í einu er þetta "litla" ósjálfbjarga barn farið að senda manni sms. Sem hljómar t.d. svona. " Hæ sæta tókstu á því í ræktinni? " WHAT???? Ég hef samt nottla klárlega ekki elst um 1 dag síðan hún fæddist :haha: Mér finnst það allavega ekki þó að kennitalan segji kannski annað :) En jæja þetta gengur ekki farin að læra. Næst þegar þið sjáið mig verð ég orðin kg. og gloss með razzinn langt fyrir ofan herðablöð!!!
Salute á línuna



Svo ein af afmælisbarninu í símanum nottla sem múttan gaf henni :)

» 7 hafa sagt sína skoðun

04.01.2009 20:27:59 / rachelin

Nýtt ár já takk !!!

Árið 2008 var klárlega það skrautlegasta ár í mínu lífi og þá er ég ekki að fara að tala um þessa helvítis fokking fokk kreppu. Það eru klárlega nógir um að ræða hana. Heldur já fokk hvað skeði eiginlega ekki ???  Humm ég fór 3svar til Spánar fyrst í lok febrúar á árshátíð með Papco og varð þetta lítið ástfangin í þeirri ferð að ég gat varla andað af hinum sjótheita Fernando ítala með meiru og brúnu augun sín fyrir allan peninginn.Þar sem ástin spyr hvorki um stétt né stöðu né aldur né fjarlægð og já hahahaha þá ákvað ég að fara aftur tæpum 2 mánuðum síðar að elta prinzinn ( lét hann ekkert vita að því ) Tók Önnu Dögg og Írisi með mér og hugsaði bara fokkit ef allt bregst þá djömmum við bara af okkur razzgatið!!! Í þeirri ferð sannfærðist ég enn meira þetta væri sko klárlega prinz prinzanna. Hann ákvað að koma hingað að hitta íslensku prinsessuna sína sem beið spennt þangað til nokkrum dögum áður en prinzinn átti að koma. Þá fékk hún hálfgert taugaáfall og slaufaði ÖLLU í sambandi við ítalann fagra. Jebbs fór allt í einu að hugsa eins og Bjöggi Thor. A. Er þetta það sem ég vil ? uhh já. B. Er framtíð í þessu ? uhhh nei alls ekki !! Þannig að ég endaði þetta prinzinum fagra til mikillar gremju enda ítalskt blóð sem rennur í þessum fögru æðum. Þannig að hann hætti að tala við mig. En það dugði nú skammt. Við byrjuðum aftur að tala saman ca mánuði seinna. Í dag þá erum við alveg ferlega góðir vinir tölum voða mikið saman og svona. hann bauð okkur mæðgum m.a.s. í heimsókn yfir hátíðirnar en aftur hugsaði ég eins og B.Thórinn.
En heheh þetta er nú alveg ekki það eina sem gerðist. Við Íris og K. Fönn fórum til Tenerife í 2 vikur í júlí og það var ÆÐI!!!!!! Fljótlega eftir heimkomuna byrjaði skvízan í Snyrtiskólanum og er að læra að verða snyrtifræðingur loksins. Var búin að ætla mér þetta í möööörg ár!!! K.Fönn byrjaði í 2. bekk og er alveg að blómstra.  Svo mætti bara lengi lengi telja. Ætla að setja inn nokkrar myndir síðan á áramótunum  ;) Gjözzovel

Við Pési vorum að spá í að taka þátt í fallegasta fólk Íslands!! Eigum við sjéns ??





KOMMENTA SVO!!!



Svo í lokin einn texti með Whitney bestu vinkonu minni, þessi texti er mér afar kær um þessar mundir af persónulegum ástæðum !!! ALGJÖRT ÆÐI!!

HOW WILL I KNOW!!

There's a boy I know
He's the one I dream of
Looks into my eyes
Takes me to the clouds above (mm hm)
Oo I lose control
Can't seem to get enough (uh-huh)
When I wake from dreaming
Tell me if it's really love
(hoo) How Will I Know
Don't trust the feeling
How Will I Know
How Will I know
How Will I know


How will I know if he really loves me
I say a prayer with every heartbeat
I fall in love whenever we meet
I'm asking you cuz you know about these things
How Will i know if he's thinking of me
I try to phone but I'm too shy (can't speak)
Falling in love is so bittersweet
This love is strong, why do I feel weak?

Oh wake me unshaken, wish I had you near me now (uh-huh)
Said that no mistaking, what I feel is really love

(Oh tell me) How Will I Know
Don't trust the feeling
How Will I Know
How Will I know
How Will I know

Repeat Chorus:

If he loves me
If he loves me not
(mm) If he loves me
(oo) If he loves me not
(he-ey) If he loves me
If he loves me not
Oh, how will I know
OO how will I know
How Will i know
Hey, how will I know (Hoo)

Repeat Chorus:

How Will I know
How Will I Know
How Will I Know
How Will I Know
Hoo How Will I know
How Will I Know
Hey How will I Know


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.12.2008 03:18:35 / rachelin

Gleðileg jól

allir saman.
Úff mar er klárlega búin að hafa það OF gott hlýt að vera komin í 100 kg. eftir þessi jól. Frétti að ég hefði borðað meira en Aron Pálmi !!!
En allavega Gleðileg jól fallega fól frá okkur mæðgum ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.12.2008 00:54:22 / rachelin

Nei farðu úr bænum!!!!

Já sit hérna heima að hlusta á jólalög og er orðin algjör steik hehehehe jebbs meira en vanalega. Orðin vangefin af svefnleysi og vangefin á að hugsa um ALLT sem ég á eftir af hverju í andskotanum er mar svona stressaður fyrir einhver jól.
Það sem ég á eftir er að
- Selja mig fyrir stígvélunum í Bianco
-Baka ALLT eiginlega ( er bara búin með piparkökurnar)
-Þrífa
-Kaupa jólagjafir
-Skreyta
-Eignast kæró í svona 10 daga svo ég fái jólapakka frá honum, verður að vera ríkur aldur púff hehe held ég verði bara að segja afstæður kannski milli 19 og 51. :p
-Kaupa jólaföt ( held ég gerði það samt um daginn eða nje ég veit ekki :haha:)
-Skrifa jólakortin
-Verða MJÓ!!
-Verða sæt nei æ já ég er það sjitt ég er svo falleg mar ég gæti grátið, enda þónokkuð viss um að mörg ykkar hafa fellt tár yfir fegurð minni. Þetta ríður ekki við einteyming!!!
-Jólasta endalaust með fallegustu Fönnsu í heimi enda eins og ég híhíhí.
og svo margt og margt og margt.
Held að edrúlífið sé bara að fara með mig er bara orðin crazy in the creamhouse !! Má það? Ætla að spurja sálufélaga minn Tóta Tyrfings I'll keep you posted.

Mongóinn í Skipasundinu segir yfir og út....

Nei eitt enn vissuð þið að múffa er ekki sama og muffins heldur er múffa hólkur sem er hjálpartæki ástarlífsins fyrir karlmenn. Nei ekki ég heldur en ég veit það núna!!!! og líður fáránlega vel yfir að hafa fengið þessa vitneskju. Guð blessi ykkur.


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.12.2008 02:04:35 / rachelin

Auðvitað er ég EKKI hætt

að blogga ;) Enda common klárlega fáir sem þurfa jafnmikið að tjá sig eins og ég ;) Bara búin að vera andlaus og mjög mikið veik síðustu 2 vikurnar!
-Í fyrsta skipti á ævi minni er ég varla búin að' gera neitt fyrir jólin, yfirleitt á þessum tíma hef ég verið að vera búin að öllu :(
-Brjálað að gera í skólanum sem er gott, vont.
-Fönnsan komin með stutt hár, jii hvað það var skrítið fyrir mömmsluna og erfitt en litlan nottla fáránlega falleg svona, en ekki hvað tíhí.
-Okkur mæðgum var boðið til Barcelona yfir hátíðirnar en nje það er ekki að gerast.
-Hætt að drekka í bili allavega komin í langa pásu. Ætla bara að rækta líkama og sál. Fór út að borða síðasta laugardagskv. var rosagaman og ennþá betra að geta svo bara keyrt heim ;)
-Byrjaði aftur í ræktinni á miðvikudaginn eftir tæplega 2ja vikna stopp og sjitt hvað það var GOTT!!!
-Er alveg að elska skólann minn í næstu viku fáum við svona dekurdag þar sem við fáum að gera hvort aðra sæta. ( brúnka, lit og plokk, húðhreinsun o.þ.h) guð minn góður ekki veitir af mar er alveg klárlega með ljótuna þessa dagana og þá meina ég á HÁU stigi.
-Langar geðveikt að taka samninginn minn þegar ég klára skólann einhversstaðar úti, er alveg rosaleg ævintýraþrá í mér e-ð.
-Langar í ný stígvél sem fást í Bianco ef einhver á í vandræðum með jólagjöfina mína ;)
-Hlakka ógeðslega mikið til að fara í jólafrí í fyrsta skipti síðan ég var bara krakki held ég verð samt að vinna e-ð á Carúsó og Kóló í fríinu, en þarf samt ekki alltaf að vakna á undan hananum.
-Fór með Fönnsuna í jólakortamyndatöku í vikunni hehe sjitt ef barnið verður ekki módel þá veit ég ekki hvað hún ELSKAR myndavélarnar thats for shore!

Já hef bara akkúrat ekkert að segja eiginlega líf mitt snýst bara um að ná upp orku aftur, hugsa um fallega barnið mitt og sinna náminu mínu og vinnunum nú og rækta vinasamböndin enda hvar væri mar án góðra vina! Læt fylgja nokkrar eða bara alveg fullt myndir með af Fönnsunni, jólakortamyndatökunni, Sálarballi, Carúsódjammi og Dúddý í borginni o.fl.;) Chao !

Varð að koma með eina ógeðslega sjúskaða með hehehe




» 7 hafa sagt sína skoðun

26.11.2008 23:54:07 / rachelin

Hef bara eiginlega ekki neitt að segja nema

Lífið er yndislegt, það er rétt að byrja........
Knúzum þá sem okkur þykir vænt um híhíhí nei ég er ekki full og ég er ekki orðin svona ógeðslega væmin LOFA. Hef bara gaman af lífinu :haha: Svo er það bara Sálin. Sódómaaaaaaaaa je je jeje




» 6 hafa sagt sína skoðun

21.11.2008 23:50:37 / rachelin

VIÐBJÓÐUR!!!!

það er alveg fáránlega ógeðslega lykt hérna inni hjá mér og ég fatta ekki af hverju eða frá hverju hún kemru. Er búin að leita út um ALLT!!!! Hélt að kisurnar mínar hefðu kúkað inni eða e--ð. En ekkert finnst. Sjittíboy ekki gott ástand þar. Er alveg viss um það að ég vakni blásaklaus í nótt og fari á klósettið til að kasta af mér þvagi já nú eða til að kúka og stígi oní e-ð blautt og renni beint á andlitið oní það og fái horn framan í mig og þurfi að fara þannig á djammið. Sjáiði þetta ekki fyrir ykkur. 
Djöfull er ég að fíla mig í tætlur í skólanum erum farnar að taka kúnna af götunni í svona stofudaga og ég er að fílaða.
Er í brjáluðu átaki sem aldrei fyrr hehe nú er það bara ræktin og Myoplex Diet. Ætla að verða mesti kroppurinn í Evrópu !!! Verð reyndar að svindla á morgun þar sem ég er að fara á Carúsó djamm íha get ekki beðið. Nema ég veit ekkert í hverju ég á að fara þetta er ábyggilega e-ð pínu fínt ég fór í Kringluna í gær og búðirnar eru tómar í orðins fyllstu. Einu flíkurnar sem eru til eru svartar eða brjálaðir galakjólar hvað er það ? Þannig að aumingja litla ég þarf að fara í einhverjum gömlum lörfum :cry: ótrúlega ekki að fílaða.
Er komin í brjálað jólaskap, það ríður bara hreinlega ekki við einteyming, er reyndar ekki byrjuð að skreyta en það fer aaaaalllveg að koma að því :haha:
En jæja ætla að halda áfram að leita að ógeðslegu lyktinni.
Salud og svo allir að koma á tjúttið á morgun!!!! Lofa að vera stillt tíhí.
 Alltaf að komast að því hvað ég og þessi gaur eigum fáránlega margt sameiginlegt.

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 25