Rachelin sú sætasta

Þú ert það sem þú hugsar!!!!

21.11.2008 23:50:37 / rachelin

VIÐBJÓÐUR!!!!

það er alveg fáránlega ógeðslega lykt hérna inni hjá mér og ég fatta ekki af hverju eða frá hverju hún kemru. Er búin að leita út um ALLT!!!! Hélt að kisurnar mínar hefðu kúkað inni eða e--ð. En ekkert finnst. Sjittíboy ekki gott ástand þar. Er alveg viss um það að ég vakni blásaklaus í nótt og fari á klósettið til að kasta af mér þvagi já nú eða til að kúka og stígi oní e-ð blautt og renni beint á andlitið oní það og fái horn framan í mig og þurfi að fara þannig á djammið. Sjáiði þetta ekki fyrir ykkur. 
Djöfull er ég að fíla mig í tætlur í skólanum erum farnar að taka kúnna af götunni í svona stofudaga og ég er að fílaða.
Er í brjáluðu átaki sem aldrei fyrr hehe nú er það bara ræktin og Myoplex Diet. Ætla að verða mesti kroppurinn í Evrópu !!! Verð reyndar að svindla á morgun þar sem ég er að fara á Carúsó djamm íha get ekki beðið. Nema ég veit ekkert í hverju ég á að fara þetta er ábyggilega e-ð pínu fínt ég fór í Kringluna í gær og búðirnar eru tómar í orðins fyllstu. Einu flíkurnar sem eru til eru svartar eða brjálaðir galakjólar hvað er það ? Þannig að aumingja litla ég þarf að fara í einhverjum gömlum lörfum :cry: ótrúlega ekki að fílaða.
Er komin í brjálað jólaskap, það ríður bara hreinlega ekki við einteyming, er reyndar ekki byrjuð að skreyta en það fer aaaaalllveg að koma að því :haha:
En jæja ætla að halda áfram að leita að ógeðslegu lyktinni.
Salud og svo allir að koma á tjúttið á morgun!!!! Lofa að vera stillt tíhí.
 Alltaf að komast að því hvað ég og þessi gaur eigum fáránlega margt sameiginlegt.
Pétur skrifaði
umm, er þetta ekki bara lyktin frá því að mjólkin fór í gólfið um daginn? En hell já, það er skrall á morgun sko!!

En mér þykir það leitt að aumingja litlsa sæta þú þurfir að fara í gömlum lörfum á djammið :( ég meina skápurinn þinn er bara alveg tómur.... eþaggi annars? hehehe
Pétur skrifaði
súrmjólkin átti þetta að vera
Guðmundur Sveinsson skrifaði
Sæl Rakel mín stóra vinkona hans Guðmund Sveinsson sem er stóri vinur þinn. Hvað er á seði heima hjá þér elsku Rakel mín sæta vinkona. Er vond fíla heima hjá í skipasundinu 69 það er ekki nóu gott að heyra að það er vond lyktin heima hjá þér elsku Rakel mín stóra vinkona hans Gumma Sveinss stóra vin þinn.
Íris skrifaði
Hæ Hlakka til að sjá þig sæta mín á eftir það verður sopið á smá hvítvíni !! get ekki beðið
Maria Lind skrifaði
Bara að kvitta fyrir komuna, vonandi finnur þú út afhverju þessi leiðinda lykt er. Tómur fataskápur, baahahaha. :o) Vonandi skemmtir þú þér vel í gærkvöldi. Kv. að Austan.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.